Sunday, September 21, 2008

Ríðum, ríðum, en rekum ekkert yfir sandinn.

Ef það er eitthvað sem hægt er að segja samstarfsfólki okkar hjá SS til hróss þá er það greddan. Þó ekki út á markaðnum, heldur meira svona innanhúss.

Steinþór hefur verið þar fremstur meðal jafningja. Þóra flugfreyja, vinkona Hönnu fyrrverandi, féll fyrst í valinn. Þóra fékk reyndar tiltölulega fljótt leið á Steinþóri enda sennilega leiðinlegasti maður í heimi – frá upphafi!

En Steinþór er talinn hafa komið víðar við. Þannig var meint ólétta Herborgar, deildarstjóra magnkaupadeildar talin, af sumum, honum að kenna. Einnig er hann talinn renna hýru auga til sölu- og markaðsstjórans.

Kalli keðjustjóri, karlgreyið hefur upp á síðkastið átt mjög erfitt uppdráttar hjá veikara kyninu. Fréttin um daginn um manninn sem hafði mök við bíl lýsir eiginlega vel hvernig ástandið er orðið.


Kalli er bæði búinn að segja verslunarstjórum og kælamönnum að fyrsta hugsunin sem fari í gegnum huga hans þegar hann sér berrasaðar kerlingar á netinu séu að þessar vildi hann hitta á dimmum stað (sennilega vegna þess að hann á þá meiri séns). Svo uppnuminn er Kalli búinn að vera að það eina sem hefur komið upp úr honum að viti er, ríða, ríða, RÍÐA!

Þeir starfsmenn SS sem voru þar þegar höfuðstöðvar félagsins voru á Skúlagötunni segja að ástandið hjá SS sé að verða eins og það var þá. Allir að riðlast á öllum. Ástandið minni líka á síðustu dagana í Byrgi Hitlers enda ástandið að verða álíka í SS Byrgi Steinþórs. Þar var öllu ríðið sem hreyfðist. Hér hjá SS er hins vegar ekki gerður greinarmunur á því hvort hlutir hreyfast eða ekki.

Og það er orðið æ erfiðara að halda úti þessari síðu vegna greddu (samstarfsfólksins). Maður situr kannski við tölvuna og er að setja inn einhvern snilldartextann á síðuna og lendir þá í því að einhver vinnufélaginn er kominn með lúkuna í klofið á manni.

Það er helst seint á kvöldin, eins og núna, sem maður fær að vera hér í friði. En bíðum við. Ég held ég heyri í einhverjum. Ríða! Ríða! RÍÐA!!!


Wednesday, September 17, 2008

Plís, Steinþór plís !


Hættu að niðurlægja sjálfan þig og fyrirtækið eins og í dag með því að koma í DV og segja að það sé ekki þess virði að fjalla um síðuna slaturfelagid.com eða svara þeim sem standa fyrir henni. En þú svarar þeim samt með því að gefa heilt viðtal !

Ertu kominn í flöskuna ? Eða eru garðálfarnir að stjórna þér ? Geimverur kannski ?

Það er eitt að fólk haldi að þú sért fífl... en þetta gekk meirasegja fram af okkur.

Er skrítið þó fólk segi að þú sért húmorslaus ?!

Þú segir í viðtalinu við DV að það séu fyrst og fremst fjármagnsliðir og erlend lán sem sé að "setja Sláturfélagið á hausinn", þú hafir ekkert með það að gera. Ert þú þá semsagt ekkert búinn að vera í vinnunni síðastliðin 20 ár ?

Hvers vegna þurfti Sláturfélagið að taka lán ? Var það vegna þess hve það var illa farið eftir 20 ára setu þína í ,,andsetnum” forstjórastól, í limited edition star trek skítabrókum? Og hvers vegna að taka erlend lán ? Vissir þú ekki að gengið var allt of hátt skráð ?!

Og afhverju segist þú hafa vissar hugmyndir um það hverjir standi að baki síðunni ? Fyrr á árinu varstu alveg viss ?! Hvað hefur gerst ?!

Svo viðurkennir þú að mikil óánægja hafi verið meðal starfsmanna. Að hlutirnir hafi verið í verulegu ólagi. En þú sagðir í febrúar margoft að það væri engin óánægja. Menn nefbrytu bara hvern annan í mesta bróðerni... svo dregur þú í efa trúverðuleika síðuhaldara? En hvar er þinn trúverðuleiki þá ?

Ert þú þá ekki bara sjálfur lágkúrulegur og búinn að gera þig ómarktækan ?

Saturday, September 6, 2008

TAP TAP TAP !!!

Nú liggur fyrir að Steinþór hefur gert bændur, sem eiga Sláturfélagið, 471,7 milljónum fátækari fyrstu sex mánuði ársins.

Smellið hér til að sjá skýrsluna

Verslunarstjórar og kælafólk virðist sammála um það að SSsökkvandi skip enda hefur þjónusta verið hræðileg í allt sumar og mikið um vöruvantanir. Það litla sem kemst í búðir rennur svo út og er fargað. Fólk nennir ekki lengur að læra nöfnin á sölumönnum eða kynnast þeim því það er skipt jafn ört á þeim og Steinþór skiptir um "Star Trek" nærbuxur.

Hann situr nú einn í leiguíbúð í Garðabæ, á nærbuxunum, og freistar þess að fá húsaleigubætur því flugfreyjan hans er flogin frá honum og hann situr einn uppi með leiguna.

Það eru "ó" vinsamleg tilmæli sem bárust okkur frá vinalínunni að láta Steinþór vita að hann eigi að hætta hringja þangað inn því fólk með alvöru vandamál nái ekki inn.

Sunday, July 6, 2008

Síðustu dagarnir í SS Byrginu.

Á dögunum auglýsti umsjónarmaður síðunnar eftir nýjum einstaklingum í ritnefnd. Og ekki stóð á viðbrögðunum. Margir höfðu samband og fullt af efni barst, mest þó óbirtingarhæft enda augljóslega frá "trufluðum" einstaklingum. Meðal þeirra sem sendu inn efni var Steinþór en hann hefur sjúklegan áhuga á þessari síðu, eins og margoft hefur komið fram í DV og í samtölum við samstarfsmenn.

Umsjónarmaðurinn var lengi í vafa um hvort hann ætti að birta tölvupóstinn frá Steinþóri (þetta er jú barnvæn siða) en hefur nú ákveðið að birta hann, enda hefur hann óvænt skemmtanagildi.

Fyrsta setningin í tölvupóstinum er svohljóðandi: "Þið þurfið ekki mig til að skreyta síðuna ykkar."

En samt sendir þú inn tölvupóst Steinþór!

Næsta setning: "Það er örugglega hægt að finna fleiri myndbönd af morðum og álíka viðbjóð sem þið getið sett inn á þessa síðu ykkar." Og líka tölvupósta frá þér, Steinþór!

Og svo kemur sú þriðja: "Ykkur virðist slétt sama hvort börn eða aðrir sjái þetta sem þið látið frá ykkur." Af öllu því sem þú gast gagnrýnt á þessari síðu þá fanst þér bara hægt að gagnrýna að hún væri ekki nógu barnvæn!!! Fyrir utan nokkrar myndir af starfsmönnum SS hefur þess verið vel gætt að hræða ekki börn eða aðra.

Og þar næsta: "Síðan segir í raun ekkert um mig og SS..." Nú hvers vegna ertu þá að senda þennan tölvupóst, Steinþór?

Að lokum: " ... og við skulum sjá hver hlær að lokum." og undirskrift: kv steinþór, með litlu s-i.

Undirskriftin er sérstaklega fyndin (og ekki bara vegna þess að þú kannt ekki að skrifa nafnið þitt, Steinþór). Mikið að ekki stóð kær kv. steinþór!

Og svo segir fólk að hann að þú hafir ekki húmor.

Nokkrum glöggum lesendum siðunnar fannst skrítið að í síðustu færslu, þar sem sýnd var mynd af fyrstu skólfustungu að nýrri förgunaraðstöðu á Hvolsvelli, hafi allir brosað út að eyrum. Skýringin á því er samt ósköp einföld. Steinþór hafði verið slæmur í maganum dagana á undan. Það gladdi því alla viðstadda þegar í ljós kom að hann gat prumpað (í leðurbuxurnar sínar) án þess að eitthvað kæmi með. Myndin hér að neðan var hins vegar tekin þegar annað kom í ljós.

Nú er komið í ljós að læringurinn hún Herborg Lewinsky , sem var í margra vikna fríi - sumir héldu til þess að eiga, er ekki ólétt. Hún lítur bara út fyrir að vera það.

Búið er að taka (ó)myndirnar af öllu starfsfólki SS út af heimasíðu félagsins. Þetta mun hafa verið gert vegna fjölda kvartana frá neytendum. Börn sem álpuðust inn á síðuna áttu mjög erfitt með svefn (sjá sýnishorn hér fyrir neðan).

Jónasi, stjórnarformanni, frá Hrossholti, var falið það verkefni á síðasta stjórnarfundi SS að grafast fyrir um hvert allir peningarnir sem Steinþór er búinn að tína fyrir bændunum væru. Eitthvað skoluðust skilaboðin til hjá Jónasi (sjá mynd) en hugmyndin ekki alvond.

Í síðustu færslu var listi sem Bjarni starfsmannastjóri tók saman og var yfirlit yfir þau 10 störf sem myndu henta Steinþóri nú þegar ljóst er að hann er á förum frá félaginu. Glöggur lesandi síðunnar benti á að Steinþór gæti ekki leikið asna eins og þar var lagt til. Annar taldi að hann gæti orðið spákona (á fullt af kristöllum). Annar benti á að til þess þyrfti að sjá hluti fyrir. Enn einn taldi að hann gæti orðið seðlabankastjóri, því hann hefði ekkert vit á peningamálum.

Starfsmenn í SS Byrginu.

Thursday, June 12, 2008

Blóm og kransar afþakkaðir

Nú er svo komið að förgunaraðstaðan á Hvolsvelli, fyrir kjöt sem rennur út í búðunum dugði ekki lengur og tók Jónas, stjórnarformaður frá Klárhóli því skóflustungu að nýrri förgunaraðstöðu þann 3. júní sl. Jónas vann sér það síðast til frægðar að vera talinn hafa verið i hópi þeirra bænda á Suðurlandi sem mótmælti símanum 1906 með hópreið til Reykjavíku. (sjá mynd , Jónas með skófluna en Steinþór í limited edition leðurbuxunum sínum)

Fullkomið stjórnleysi ríkir hér á Fosshálsi þar sem áður ríkti alger óstjórn. Engar ákvarðanir eru teknar (nema þær séu vitlausar) vegna þess að enginn veit neitt eða þá að það þarf að funda fyrst um málið (og svo vita ekki neitt).

Nýjir sölumenn ganga meira og minna sjálfala og panta út í loftið. Þeir sem hafa einhverja reynslu eru annað hvort farnir eða vildu að þeir væru það. Vöruskil eru að sliga fyrirtækið.

Salan á SS grillkjötinu, sem Steinþór samdi um við Gumma i Bónus, er nánast engin en sú sala átti að bjarga fyrirtækinu. Kjötið rennur út í búðunum og úldnar þar vegna þess að sölumenn eru ekki að hirða það úr kælunum. 20% afslátturinn til Gumma í Bónus skilar því hvorki SS né Bónus neinu og gert er ráð fyrir því að kjötið verði tekið úr sölu á næstu dögum.

Það á ekki af henni að ganga lambinu henni Grétu, nýja sölu- og markaðsstjóranum. Hún á ekki sjö dagana sæla því ofan á allt annað þá sætta Samkaupsmenn sig ekki við einungis 14% afslátt af kjötvörum og full skil. Í ljósi mikillar veltuaukningar vilja þeir meira. Kæra sig ekki um að niðurgreiða afsláttinn á grillkjötinu í Bónus. Að sögn Grétu hafa þeir hótað að hætta viðskiptum að mestu ef ekki verður orðið við kröfum þeirra.

Dalvík er síðan búið að semja við nýjan aðila um skólamatinn. Gerðu sér ekki að góðu upphitað sull frá Hvolsvelli þegar foreldrar barna þar litu ekki við því.

Til þess að krafsa í bakkann og bjarga því sem bjargað verður hefur SS nú hafið sölu á rúlluplasti til bænda (til viðbótar við sölu á áburði og fóðri og bráðum væntanlega hlandgulum ullarnærbuxum og sauðskinnsskóm).

Á sama tíma er grillkjöt að koma í búðir óáprentað. Því má ætla að ,,snillingarnir” á Hvolsvelli hafi víxlað plastinu og að við munum sjá heyrúllur með mexíkó og Cajp’s bragði í sumar !

Talandi um bændur, þá eru þeir sá hópur sem ætti virkilega að vera ánægður núna og afþakka blóm og kransa í samdrættinum. Þeir, eigendur SS, eru að losna við Steinþór. Gjaldeyrisbrask hans með fé SS (samt ekki sauðfé) án vitundar stjórnar eða félagsmanna síðastliðin tvö ár kostuðu félagið tugi milljóna króna. Til viðbótar hafa hundruðir milljóna tapast á annars konar braski í gegnum tíðina og milljarðar vegna annarra rangra ákvarðana (eða ákvarðanaleysis).


En það eru fleiri sem kætast. Einn þeirra er Bjarni Stefáns, starfsmannastjóri og ákafur áhugamaður um nýtingu eigin veikindadaga, er búinn að taka saman lista yfir þau 10 störf sem myndu henta Steinþóri best nú þegar ljóst er að hann er á förum frá félaginu. Listi Bjarna, er svohljóðandi:

1. Opna Qbar í Írak.
2. Dyravörur á Qbar í Reykjavík
3. Leika afturendann á hesti í leiksýningum.
4. Vera “crash test dummy”.
5. Leika ísbjörn í Skagafirði.
6. “Leika” framhlutann á asna í leiksýningum
7. Vera þátttakandi í dvergakasti (með eða án hjálms)
8. Útfararstjóri
9. Rasshárasnyrtir
10. Launafulltrúi hjá VR (til að leysa úr “sínum” málum).

Wednesday, May 21, 2008

Jónas og félagar reiða til höggs!


Nú eru Jónas stjórnarformaður, sem ber ábyrgð á Steinþóri, frá “Kálfur út úr kú holti” og félagar í stjórn Sláturfélags Suðurlands búnir að fá endanlega nóg af honum eftir 20 ár á forstjórastóli. Ekki er lengur hægt að múta Jónasi og varastjórnarformanninum með stjórnarsetu í Reykjagarði.

Búast má við því að stjórnin “afhausi” Steinþór á næstu dögum.

Ástæðurnar fyrir óánægju Jónasar og félaga eru fyrst og fremst samstarfsörðugleikar Steinþórs við starfsmenn og bændur vegna arfaslakrar afkomu í gegnum tíðina, meintrar einhverfu og truflunar. Þessi síða hefur einnig gert sitt.

Ekkert lát er á brotthvarfi starfsmanna og svo illa er komið á Fosshálsi að það þarf að kalla til Huga Sævars, áður hjá Íslensk-Ameríska, til þess að segja okkur hvernig eigi að raða í hillur (sú þekking hafði tapast).

Stórhættulegt er að standa í útidyrunum þegar hjörðin út úr fyrirtækinu fer hjá.

Niðurstaðan í síðustu VR könnun, sem birt var um helgina, var afhroð fyrir Steinþór eftir að hann hafði verið með byssuhlaupið upp í kjaftinum á okkur til þess að kjósa “rétt”.

Við þetta bætist að nú eru 3 mál á hendur Steinþóri og SS hjá VR. Fleiri mál munu í farvatninu. Meðal annars eineltismál.

Ekkert gengur hjá Steinþóri og félögum að finna umsjónarmann síðunnar. Geir og Grani hafa verið settir í málið og munu byrja um leið og þeir hafa fundið líkin af Guðmundi og Geirfinni.

Steinþór býr yfir öllum þeim kostum sem prýtt geta góðan skipstjóra ... á skipi sem á að sökkva. Hans helstu kostir eru að reyna að láta okkur halda að hann sé með allt á hreinu þó hann hafi ekki grænan grun um hvað er að gerast og koma fram opinberlega fyrir hönd félagsins í DV og gera sig að fífli.

Enginn man lengur hvenær Steinþór tók síðast skynsamlega ákvörðun. Samt verst að hann er haldinn brjálæðislegri minnimáttarkennd (sem er einkenni stubba sem ekki mega fljúga öðru en kústsköftum) sem brýst út í húmorslausum hroka og mannfyrirlitingu.

Steinþór!

Það verður bráðlega leyft að flytja inn hrátt kjöt. Vildum bara láta þig vita vegna þess að allur þinn tími fer í að vera inn á þessari síðu. Hangir hér lon og don og reynir að senda inn athugasemdir um hvað þú sért frábær!

Það sem þó gerði útslagið hjá Jónasi og félögum varðandi ,,afhausun” Steinþórs var tilboðið sem hann gerði Einari Viðari fyrrverandi sölustjóra í byrjun apríl. Að sögn Einars bauð Steinþór honum ríflega greiðslu í stað sölubónuss gegn því að hann skrifaði óhróður um fyrrverandi starfsmann. Það kann þó líka að hafa spilað inn í að talið er að Steinþór fari heim í hádeginu, á vinnutíma, til að ríða!

Jónas og félagar eru búnir að ræða við Hjalta fjármálastjóra um að taka við SS Títanic. Einhver þarf jú að tryggja að allir komist frá borði áður en skútan sekkur. Kalli bókari og Grjóni DOS, næstu undirmenn Hjalta, eru ekkert alltof hrifinir. Hjalti er jú þekktur fyrir að draga lappirnar eins og Steinþór þegar kemur að ákvarðanatöku. Ekki víst að allir komist frá borði.

Búast má við því að “afhausun” Steinþórs verði fylgt eftir með því að “afhausa” Gunnar Fretar og Guðmund Svavarsson, framleiðslustjóra, enda bera þeir tveir ábyrgð á hundraða milljóna tjóni SS vegna vöruvantana á ári (auk almennra leiðinda).

Nýjustu fréttir eru að Steinþór hafi verið í tölvusamskiptum við Gunnar Fretar (mannleg samskipti erum jú báðum um megn) um að segja upp tveim starfsmönnum í sölu- og markaðsdeildinni. En meira um það í næstu færslu.

Tilvonandi fyrrverandi starfsmenn SS.

Saturday, May 3, 2008

Umsjónarmaður síðunnar grípur til vopna!





















Nýjasta verkefni Steinþórs á sviði starfsmannamála var að reka Steinar einn fremsta sölumann félagsins í gær. Ástæðan var sú að Steinari hafði mistekist að sjá til þess að Gunnar Fretar tryggði það að nægar innflutningsvörur kæmu til landsins svo hægt væri að panta þær fyrir verslanirnar hans. Fyrst ætlaði Steinþór þó bara að eiga létt spjall við Steinar en ákvað að reka hann þegar honum dirfðist að bera hönd fyrir höfuð sér.

Það fyndnasta við ofangreint er að Steinþór fór samt fram á að Steinar ynni út uppsagnarfrestinn. Líklega til þess að hann gæti áfram séð til þess að vörur vantaði í búðir! Við höfum á tilfinningunni að Steinþór sé að vinna gegn hagsmunum félagsins!

Talandi um að vera "truflaður".

Auk Steinars eru núna sex aðrir starfsmenn að hætta hjá SS á næstunni. Allir vegna of mikillar ánægju með Steinþór. Þetta er nú öll sáttin sem Steinþór sagði að ríkti innan fyrirtækisins í DV 30. apríl sl. Guð hjálpi fyrirtækinu ef “sáttin” verður eitthvað meiri!

Eftir nokkrar vikur verður svo komið að Einar Örn og Benni feiti, sölumenn sem fara heim til sín í hádeginu og leggja sig, komast næst því að vera með fullu viti hjá fyrirtækinu. Það má því segja að öfugt við önnur sökkvandi skip virðist rotturnar vera síðastar frá borði hjá SS Títanic.

Það er annars af Gunnari Fretari að frétta að hann er búinn að vera í útlöndum að leita sér lækninga vegna kólígerla á tungunni. Hann var því bæði farinn að þjást af gin- og klaufaveiki.

Vegna þess að Gunnar Fretar taldi sig niðurlægðan með fyrri myndbirtingu (hver væri ekki niðurlægður með svona mynd) ákvað umsjónarmaður síðunnar að gera hann óþekkjanlegan með því að setja svartan borða yfir augun á honum.


Í plagginu sem Steinþór sendi okkur 14. apríl sl. kl. 10:02:48 og kallaði “verkefni á starfsmannasviði” kom fram að það væri, “áhyggjuefni að ... veikindi starfsfólks og fjarvistir vegna þeirra (væru) nokkuð meiri en meðaltal sambærilegra fyrirtækja. Þetta segir okkur að betur þurfi að gera í ýmsum þáttum sem lúta að aðbúnaði starfsfólks og því umhverfi sem við bjóðum upp á.” Steinþóri láðist að koma með réttu lausnins. Segja honum upp!

Nú byrjar, Gréta nýji sölu- og markaðsstjórinn 15. maí. Af myndinni að dæma, sem starfsmannastjórinn tók af henni, mun hún ekki endast nema til hausts hjá Sláturfélaginu af augljósri ástæðu (það skal þó tekið fram að Bjarni starfsmannastjóri er svo mikill klúðrari að ekki er víst að hann hafi tekið mynd af réttri skepnu). En eitt er samt víst. Nú eru bara kellingar í yfirstjórn SS.


er komið í ljós að Herborg Svana, ein af yfirkellingunum í sölu- og markaðsdeildinni er ólétt. Reyndar þóttist glöggur starfsmaður Reykjagarðs hafa tekið eftir þessu fyrir rúmu ári! Á sama tíma er Herborg að leita sér að nýrri vinnu (herborg@ss.is) , en uppsagnarfrestur hennar rann út 30. apríl. Herborg er ekkert sérstaklega vinsæl meðal okkar, en hvað vitum við svo sem. Það telst henni þó til tekna að hún fann upp orðið “forstjórafífl”.

Óléttan mun vera aðferð Herborgar til þess að losna frá fyrirtækinu án þess að þurfa að segja sannleikann, þ.e. hvað henni finnst um Steinþór, Gunnar Fretar, H(j)alta, Guðmund Svavars, Bjarna starfsmannastjóra og “hross”, Grjóna DOS, Ragnar kjúlla, asnana fyrir austan, o.s.frv.

Glöggir menn telja sig þó sjá að álit Herborgar á Steinþóri hafi eitthvað breyst og kveður svo rammt að því að farið er að kalla hana Herborgu “Lewinsky”.

Steinþór, takk fyrir að halda áfram að mæta í hommableiku skyrtunni. Góð auglýsing fyrir síðuna, sem verður haldið úti meðan þú ert við völd !

Starfsmenn SS (þeir sem eru eftir).

Friday, May 2, 2008

Starfsmenn SS niðurlægðir

Steinþór var í viðtali í DV 30. apríl sl. sagður vera að slátra fyrirtækinu með harðneskjulegum stjórnunarstíl sínum og lélegum starfsanda innan þess. Innanhúss rannsókn væri í gangi vegna ásakananna á hendur honum. Það sem þar kom fram er ekki hæft til birtingar á prenti.

Þetta viðtal var algjört ógeð og viðbjóður fram og til baka og er búið að valda okkur starfsmönnum SS miklu hugarangri. Viðskiptavinirnir, fjölskylda og vinir hæðast af okkur fyrir að hafa svona forstjóra.

Við höfum því kært viðtalið við Steinþór til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og treysta á liðsinni hennar. Það er mjög slæmt ef menn geta komist upp með svona viðtöl.

Ef lögreglan tekur á þessu af sömu hörku og vörubílstjórunum má búast má við því að “Gas, gas, gas!” ómi um ganga SS á Fosshálsi strax eftir helgi!

Starfsmenn SS.

Thursday, April 10, 2008

Skipsmenn SS Enterprise


Nú eru nýjustu fréttir að einn öflugasti sölumaður og keðjustjóri SS sé hættur. Steinþór telur þetta líklega vera gleðifréttir en hans stefna er að skera niður starfsfólk, borga lægri laun og auka álag á þá sem eftir eru.

Enginn veit hvers vegna síðasti sölumaður var ráðinn ... honum hafði verið sagt upp starfi hjá Borgarnes Kjötvörum og neitað um vinnu á fjölmörgum stöðum vegna slæmra “meðmæla” frá þeim. Ekki tékkað á því hér hjá okkur... mann grunar að hann og Steinþór gætu þekkst persónulega þar sem þessi ákveðni sölumaður hefur unnið reglulega á hommabarnum Qbar. Fínn staður til að spóka sig í hommableiku skyrtunni.

Róbert Imsland gæti einnig átt svipuð tengsl.. en hann er alveg einstaklega fær í að sleikja rassgatið á Steinþóri. Samt predikar hann yfir okkur sem erum á gólfinu um að hann vilji nýjan forstjóra sjálfur ... “einhvern með heila”.






Bjarni starfsmannastjóri , gaurinn í horninu sem fær laun fyrir að gera ekki neitt. Hann er góður í að lepja rassgatið á Steinþóri líka. En hann á ekki neinn þátt í ráðningu nýs starfsfólks. Ekki sér hann um endurmenntun eða þjálfun nýrra starfsmanna heldur. Starfsmenn sem hafa unnið hér í meira en 10 ár hafa aldrei hitt manninn. Hann er kannski úti á plani að rannsaka hvort starfsmenn séu með lifandi hross í bílunum jú eða slöngur, það hefur verið baráttumál hjá honum. Ég er með hugmynd að nýjum starfstitli sem er “Fífl”. Kannski á hann að vera fordæmi okkur allra um hvernig við eigum ekki að hegða okkur.

Gunnar Grétar virðist þó taka Bjarna til fyrirmyndar en eins og öllum er kunnugt þá er Gunnar sérlega duglegur við það að sinna sínum einkaerindum á vinnutíma. Þá helst að sækja krakka á ballett æfingar. Hér er hugmynd að starfstitli fyrir hann “skemmdarvargur” því það er ósjaldan að hann fangar vinnandi menn á göngunum og truflar þá með löngu tilgangslausu spjalli. Ekki mikið vinnuálag á honum greinilega. Hann minnir mig á áhyggjulausann einstakling með downs heilkenni (sjá mynd).

Gunnar Grétar, Einar Örn og Benni Feiti geta slæpast saman að gera ekki neitt á launum. Bjarni fær ekki að vera með því hann segist oftast bara vera veikur til að geta verið heima heilu og hálfu dagana á launum.

Hvernig er svo að kenna nýjum starfsmanni á fallega tölvukerfið okkar sem er keyrt á DOS. Já þið lásuð rétt... DOS sem var fundið upp á undan reiknivélinni. Þetta sýnir bara hvað Sigurjón er mikill rassasleikir líka. Hvergi annarstaðar kæmust menn upp mað það að keyra á jafn ónotendavænu kerfi í svona stóru fyrirtæki.

Ekki það að þeir á Hvolsvelli þurfi á því að halda enda eru allar þeirra áætlanir skrifaðar á minnismiða (sem fjúka út um gluggann ef einhver er svo vitlaus að opna hann, sem að sjálfsögðu gerist oft!).

Af reynslunni má sjá að þeir sem eru bara nógu duglegir að sleikja rassinn á Steinþóri þurfa ekkert að gera nema eyða laununum sínum. Þetta eru ágæt skilaboð til nýrra starfsmanna.

Ég vil þakka þeim sem hafa veitt okkur fjárstuðning. Það mun halda síðunni gangandi um ókomin ár.....eða lengur.

Í lokinn langaði mig að minnast á könnun sem var gerð meðal starfsfólks markaðs- sölu- og afgreiðsludeildar ekki alls fyrir löngu þar sem allir voru spurðir að því hvað þeir myndu gera ef þeir fengju að vera forstjóri í einn dag... mesta athygli vakti að nokkrir hefðu skrifað : ,, Sjá til þess að forveri minn kæmi ekki aftur !”

Við viljum þig burt Steinþór og allt þitt leiguþý!

Thursday, April 3, 2008

Enn æsast leikar um borð í SS Títanic!


Það er búið að vera svo mikið að gera hérna um borð í SS Títanic að við höfðum ekki haft tíma til þess að setja nýja færslu inn á síðuna. Þurftum sum meira að segja að vinna laugardaginn fyrir páska og allt.

Í síðustu færslu sögðum við meðal annars frá því að Steinþór, skipperinn og svifflug(k)a(p)pinn sjónumhryggi (mikið ofboðslega er það nú hallærislegt að mega ekki fljúga neinu almennilegu), væri búinn að týna gula lukkublýantinum sínum. Allir hér á Fosshálsi eru ennþá að leita. Starfsfólk á Selfossi og Hvolsvelli líka. Enginn veit hvað svona blýantur getur gengið langt!

Núna er Steinþór hins vegar búinn að týna lausri skrúfu. En vegna þess hve mikið grín var gert að honum þegar hann lýsti eftir týnda gula lukkublýantinum sínum með tilfinningalega gildinu (sem reyndar færði honum ekkert nema óheppni) þorði hann ekki að senda tölvupóst á allla á Fosshálsi af ótta við að það yrði hlegið að honum (eins og það þyrfti nú til!).

Steinþór er reyndar líka búinn að týna hlandgulu „limited edition" Startrek nærbuxunum sínum með öllum geimverumyndunum á. Þetta fer þó ekki hátt. Gæti litið illa út í fjölmiðlum eða á netinu (úbs!). Jafnvel verr en viðtalið í DV vegna slagsmálanna í keilunni (þar sem „enginn" meiddist þó einn væri með nefið út á kinn næstu vikur á eftir).

Gunnar Grétar lét sig hverfa eins og blý(f)anturinn skynsami nokkrum dögum fyrir páska. Enginn ennþá gefið sig fram sem reyndi að leita að honum. Enda eins gott!
„Snillingurinn" er annars kominn með vöruvantanir á heilann. Og þegar hann er kominn með eitthvað á heilann þá er það þar áfram!

Nú liggja hins vegar allir undir grun vegna þessarar síðu. Jafnvel talið að Hanna, fyrrverandi ektakvinna Steinþórs, hafi lánað myndir úr fjölskyldualbúminu! Samt frekar hæpið. En skilnaðurinn ljótur. Flugfreyja í spilinu. Hopp-fargjald?

Sigríður og Herborg, sem eins og allir vita eru að hætta vegna ánægju með Steinþór, Guðmund Svavars, H(j)alta, Bjarna Stefáns (sem ekkert skilur út í Endurmenntun), Gústa (sem ekki skilur neitt í neinu á Hvolsvelli) o.s.frv. eru að reyna að stappa stálinu í okkur hásetana. Enginn skilur lengur hvers vegna þær eru hérna ennþá. Enginn talað eins mikið um „forstjórafílflið" og þær.


Salan er á algerum bömmer og afgreiðsludeildin er í algeru limbói. Allur kostnaður úr böndunum. Robert Imsland stendur sig vel í að passa upp á að vörur berist ekki til viðskiptavinanna. Fær mikla hjálp frá Hvoslvelli. Enginn veit hvort afgreiðsludeildin verður flutt til Hvolsvallar eða ekki eða hvort það skipti máli nema síður sé.


Steinþór, náði svo nýjum lægðum í síðustu viku! Sá ekki einu sinni sóma sinn í því að hafa lokað um borð í dallinum vegna jarðarfarar fyrrverandi símadömu. Hundskaðist þó til að mæta í jarðarförina. Það lýsir kannski best ástandinu um borð í SS Títanic að enginn vildi sitja hjá honum í kirkjunni.


Steina skipper má þó segja það til hróss að hann stendur enn vaktina – stjarfur í horninu sínu, blýantslaus, nærbuxnalaus og fyrir luktum dyrum! Minnir á strút sem hefur stungið hausnum í sandinn og það geta allir sparkað í rassinn á honum (eða gert eitthvað annað við hann) án þess að hann viti hver gerði það!

Tuesday, March 18, 2008

SS Titanic


Nýjasta áhyggjuefnið um borð í SS Títanic er hvað hafi eiginlega orðið af gula Volvo lukku(skrúf)blýantinum hans Steinþórs en hann lýsti eftir honum í tölvupósti sem sendur var á alla á Fosshálsi sl. föstudag !

Þessi blýantur hefur mikið tilfinningalegt gildi fyrir Steinþór, að hans sögn. Vandamál sem ekki var hægt að leysa með því að tala við kristallana voru leyst(?) með því að tala við blýantinn. En nú er hann sem sagt búinn að fá nóg og hefur látið sig hverfa, þ.e. blýanturinn.

En þetta er því miður ekki eina vandamálið sem hrjáir skipperinn sjónumhrygga. Bændur eru víst farnir að ókyrrast. Vilja nýjan skipper. Muli framleiðslustjóri og halti fjármálastjóri(nn) hafa verið að bjóða sig fram.

Ekkert gengur með mannauðsstjórnunina. Ekkert bólar á Íþróttastyrkjum og lýsisskammtur helmingaður (vegna misnotkunar - starfsfólk var farið að gúffa í sig tveimur skeiðum!). Bjarni starfsmannastjóri sendur á námskeið en hann skilur ekkert. Það hefur ekki gerst áður hjá Endurmenntun !

Bónus er í aðgerðum gegn SS. Ekki næg framlegð að koma út úr vörunum. Steinþór hélt að lausnin væri að hann spjallaði við Gumma Marteins. Gullfiskaminnið ekki lengra en svo að hann mundi ekki eftir því að hann rak Jóhannes (í Bónus) á sínum tíma þegar hann var hjá SS. Baugsmenn eru með fílsminni hins vegar og muna allt.

Kaupásmenn líkar fúlir út í Steinþór. Ætla að henda út öllum SS vörum nema pylsum og 1944.

Samkaupsmenn heldur ekki ánægðir. Vilja fá fullan skilarétt eins og aðrir og kjör í samræmi við veltu.

Viðskiptavinir magnkaupadeildar hafa sölumenn að háði og spotti.

Vöruskil eiga hug Steinþórs allan þessa dagana á sama tíma og vörur fást ekki í búðum vegna aðgerða kaupmanna og klúðurs í framleiðslunni. Hann vil heldur sækja fé inn í fyrirtækið heldur en út á markaðinn. Ekki talað um neitt annað á fundinum þar síðasta mánudag.

Steinþór tók Þórhall í gegn sama dag. Hann er alveg eyðilagður, íhugar að hætta... eins og oft áður. Andlegt álag hjá honum ekki í nokkru samræmi við heilastærð lengur!

Það er búið að ráða nýjan sölumann. Kemur frá Borgarneskjötvörum. Enginn spurt hvers vegna hann var látinn hætta þar. Einar Örn hins vegar feginn að vera ekki lengur einn um að fara heim í hádeginu til þess að leggja sig. Geta nú farið saman og sparað bensín!

Sölumenn kvarta yfir því að „opnu dyrnar" hjá Steinþóri séu lokaðar. Hann bendir bara á Gunnar Grétar, helsta lærisveinn sinn í mannlegum samskiptum í gegnum tölvu. Steinþór búinn að skrökva svo miklu að hann er hættur að geta horft í augun á fólki.

Enginn veit lengur hver gerir hvað (eða hvort) eða er yfir hverju eða hverjum og hvers vegna (eða hvers vegna ekki). Gunnar Grétar og trunturnar tvær, sem eru að fara til útlanda (önnur í nám til Danmerkur til að læra eitthvað og hin til Noregs til að vera au-pair hjá ítalska þjálfaranum), láta ekki ná í sig. Allir að íhuga að fylgja fordæmi gula skrúfblýantsins og láta sig hverfa!

Steina skipper má þó segja það til hróss að hann stendur enn keikur í hommableiku skyrtunni sinni í stafni SS Títanic (þó sennilega skut). Þórhallur segist þó hafa komið að honum grátandi inn á skrifstofu einn morguninn (eftir að hann var búinn að bjóða góðan daginn, án þess að nokkur heyrði).

Fúlir vindar leika um skipperinn á SS Títanic. Borgarísjakar við sjóndeildarhringinn. Fara stækkandi!

Sunday, March 9, 2008

Fréttir frá Fosshálsi


Enn versnar ástandið hér á Fosshálsi. Steinþór þykist nefnilega vera búinn að komast að því að það séu núverandi starfsmenn sem halda úti þessari síðu. Þeir sem nú eru grunaðir eru Viðar, vegna þess að hann mætti ekki á árshátíðina, og Einar Örn, vegna þess að hann mætti á hana.

Allstaðar er kvartað undan Steinþóri eða „forstjórafíflinu“ eins og hann er almennt kallaður innan veggja félagsins . Bændur líkja honum við Edward John Smith skipstjóra Titanic og viðskiptavinirnir segja hann „truflaðan“ .
Okkur, viðskiptavinum og bændum finnst hann hrokafullur. Svo talar hann líka niður til okkar. Maður hefur heyrt mikið talað um það.

Óánægja kaupmanna leynir sér ekki. Þeir þurfa núna að díla við Steinþór beint bæði á fundum og í tölvupóstum, sem er þó skárra af tvennu illu. Þeim er mismunað herfilega. Við keðjustjórarnir, erum milli stein(þór)s og sleggju. Það má búast við hemdaraðgerðum.

Og nú er Dalvík búin að ákveða að framlengja ekki samninginn um skólamatinn. Bærinn treystir víst ekki lengur fyrirtækinu. Lesa víst DV. Hafnfirðingar lesa það líka þannig að búast má við því að samningurinn verði heldur ekki framlengdur þar. Og fleiri munu fylgja í kjölfarið.

Gunnar Grétar, er að klúðra sölunni á vörunum frá Mars, big time! Í febrúar náði hann nýjum lægðum. Skeit lengra upp á bak en hann hefur gert lengi. Má segja að það hafi verið alveg upp í hnakka, bæði andlega og líkamlega. Hann er nú alveg að fara á taugum út af heimsókn Stefáns , Mars-kalls. Líkur aukast á því að SS missi umboðið. Viðvörunarbjöllur farnar að klingja - eða eru það kannski kirkjuklukkurnar að hringja inn útförina?

Salan er á svo miklum bömmer að Steinþór er farinn að senda út tölvupósta og ýta á tilboð í öllum keðjum mörg í viku. Er það félaginu í hag ? En ekkert gerist... ekki hægt að taka manninn alvarlegan þar sem hann talar við álfa og steina.

Verst samt að við keðjustjórarnir skyldum vita að salan var á bömmer. En því var nú kippt í liðinn með því að loka á aðgang að söluupplýsingum. Áhöfnin á Titanic hafði örugglega betri upplýsingar til þess að stýra þeirri skútu eftir.

Sölumenn keppinautanna nýta sér aðstæður grimmt og herja á markaðinn.

Mann(s)auður er orð mánaðarins hjá SS!

Thursday, February 28, 2008

Fréttir frá Hvolsvelli

Við vorum að tala um það eftir fundinn í gær hvað við ættum orðið erfitt með að fá tímann til að líða. Framleiðslan er komin í algert lágmark og algert ráðaleysi virðist vera á sölunni.

Bændur eru farnir að ókyrrast en Muli hefur verið í því að róa þá. Þeir vilja bara að hann taki við forstjórastólnum.

Halli var að segja okkur góða sögu af forstjóranum . Það er ekki satt að hann bjóði ekki góðan daginn heldur mætir hann bara svo snemma á morgnana að það heyrir enginn í honum !

Hér gantast menn með það að nú ætti Steinþór eiginlega að fara að fordæmi Lárusar Welding hjá Glitni og lækka launin sín. En ekki um 50%. Hann ætti að hafna öllum launum og bjóðast til að endurgreiða þau laun sem hann hefur fengið frá 1988 !!

Bæði nafnlaust bréf sem sent var á stjórn og varastjórn félagsins í haust sem og bréfið frá fyrrum starfsmanni sem hætti í lok sumars eru komin í umferð. Þar er í ýtarlegu máli lýst stjórnunarháttum Steinþórs sem og óánægju með hann. Við erum að velta fyrir okkur hvort rétt sé að birta þau hér.

Óánægja með Steinþór virðist aukast dag frá degi enda er starfsmannavelta hrikaleg. Engir peningar virðast til nema fyrir nýjum rándýrum bíl fyrir forstjórann.

Steinþór hefur fundið lausn á neikvæðu niðurstöðunum í VR könnununum. Hann hamrar á því við fólk að vera jákvæðara í VR könnuninni sem núna er í gangi !

Það er ekki annað hægt að segja en að innanhúsdeilur séu alveg að fara með fyrirtækið. Árshátíðin sem á að vera 1.mars nk. var næstum blásin af vegna ótta við hópslagsmál eins og í keilunni um daginn. Það þarf bara að vera með vopnaleit líkt og í framhaldsskólum vestanhafs !

Hver er sá truflaði ?

Tekið af DV.is :

„Mórallinn er orðinn það slæmur að slagsmál brjótast úr þegar við förum að skemmta okkur saman. Jafnvel í keilu þar sem einn starfsmaður nefbrotnaði og annar gisti fangageymslur. Þetta var eitt það ógeðslegasta sem ég hef séð,“ segir í færslu inn á vefsvæðinu slaturfelagid.com.

Heimasíðan var sett upp til höfuðs forstjóranum Steinþóri Skúlasyni en þar er hann sakaður um að vera óhæfur í starfi og sé kominn langt með að drepa niður vinnuandann. Steinþór segir að hin meintu áflog hafi ekkert með innanhússdeilurnar að gera. Hann hafi ekki heyrt af þessum áflogum sjálfur og sá sem hafi ritað færsluna sé líklega truflaður fyrrverandi starfsmaður.

Sjá nánar í DV í dag. Slóð á DV.is : http://dv.is/frettir/lesa/5705

Wednesday, February 20, 2008

Hjálp !


Ástandið hér innan húss er vægast sagt orðið óbærilegt. Þögnin er ríkjandi , við öll erum farin að hvísla og loka að okkur hurðum. Andrúmsloftið mætti skera með demanti. Það er leitað að sökudólgum út um allt.

Og ekki bætir viðtalið við forstjórann í DV í dag ástandið. Nú á lögreglan að rannsaka hver okkar vilja skipta um forstjóra ! Er það honum til framdráttar ?

Mórallinn er orðinn svo slæmur að áflog brjótast út þegar við förum að skemmta okkur saman. Jafnvel í keilu þar sem einn starfsmaður nefbrotnaði og annar gisti fangageymslur. Þetta var eitt það ógeðslegasta sem ég hef séð ! Hvernig verður árshátíðin eiginlega þar sem við öll mætumst ?
Það eru stöðugar vantanir á vörum en ég held að okkur sé flestum orðið sama. Viðskiptavinirnir gera stöðugt grín að þessum aðstæðum og það er farið að brjóta móralinn ennþá meira hjá okkur, maður fær engann vinnufrið !

Og ekki er ástandið skárra á Hvolsvelli og Selfossi. Starfsfólkið þorir ekki lengur í bæinn. Og enginn vill hitta forstjórann.

Enginn þorir að hreyfa sig neitt eða gera nokkuð án þess að bera það undir forstjórann . Það er allt lamað hér á Fosshálsi.

Allir þeir sem búnir eru að segja upp geta ekki beðið eftir að fá að hætta áður en uppsagnarfresturinn rennur út. Aðrir eru að leita sér að vinnu svo þeir geti hætt.

Fólk er farið að grínast með það að Steinþór verði einn eftir. Þá getur hann verið leiðinlegur í 430 störfum til viðbótar.

Jónas ,

okkur líður hryllilega illa í vinnunni. Við treystum á það að hlutirnir fari að lagast. Við erum dyggir starfsmenn og viljum fyrirtækinu vel, þessvegna erum við hér ennþá. Það gæti verið einstaklega gaman að vinna hérna.

Nú er nóg komið. Þú verður að skera okkur niður úr snörunni!

Monday, February 18, 2008

Segjast ekki tengjast heimasíðu til höfuðs Steinþóri


ÉG var á fundinum í söludeildinni í dag. Þar vorum við pínd til að skrifa undir að við stæðum ekki fyrir þessari heimasíðu , http://www.slaturfelagid.com/ með haglabyssuna nánast í kjaftinum.
Sigga og Herborg sem eru ný búnar að segja upp vegna óánægju stjórnuðu fundinum en Gunnar Grétar var með ásakanir í garð fyrrverandi starfsmanna. Það er helvíti fyndið að halda því fram að fyrrum starfsmenn sem vilji fyrirtækinu illt vilji að skipt verði um forstjóra þegar allir vita að það er best að gera það ekki .

Svo skil ég ekki hvers vegna er verið að ráðast svona að okkur í söludeildinni. Það erum jú ekki bara við í söludeildinni sem höldum úti þessari síðu heldur starfsfólk úr nánast öllum deildum fyrirtækisins. Og það er klárlega ekki ástæðulaust hvers vegna nafnleyndar okkar allra verður að gæta !

Sunday, February 17, 2008

Við viljum nýjan forstjóra hjá SS !


Nýji forstjórinn verður að:

  • Bjóða góðan daginn!
  • Njóta trausts og virðingar
  • Vita hvað forstjóri á að gera
  • Vera meðvitaður um hvað er að gerast í fyrirtækinu
  • Líta á starfsfólk sem auðlind
  • Vera framsækinn
  • Móta stefnu - aðra en þá að hanga á forstjórastöðunni eins og hundur á roði
  • Beita nútímalegum stjórnunaraðferðum
  • Taka skynsamlegar ákvarðanir
  • Hafa kímnigáfu
  • Ná árangri í starfi
  • Henda kristöllunum!

Starfsfólk SS

Tekið af visir.is :




Andri Ólafsson skrifar:

Mikil óánægja er á meðal margra starfsmanna Sláturfélags Suðurlands en á síðustu dögum hafa sex starfsmenn sölu og markaðsdeildar, þar af þrír stjórnendur, sagt upp störfum hjá fyrirtækinu.

Þrír af þessum sex sögðu upp fyrr í dag. Heimildarmenn Vísis í fyrirtækinu segja að enn fleiri séu að íhuga stöðu sína og muni segja upp störfum á næstu dögum.

Forstjóri SS, Steinþór Skúlason, hefur boðað til starfsmannafundar vegna málsins klukkan 16 á morgun.

Samkvæmt heimildum Vísis komu uppsagnirnar í kjölfarið á langvarandi óánægju margra starfsmanna með stjórnunarstíl og aðferðir Steinþórs forstjóra SS. Sem dæmi um það má nefna afar slæma útkomu SS úr nýlegri könnun VR á viðhorfum starfsmanna um 130 fyrirtækja til stjórnenda sinna.

Heimildarmenn Vísis nefna helst forneskjulegan stjórnunarstíl, stöðuga afskiptasemi og stefnuleysi í mannauðsmálum.

Einn óánægður starfsmaður SS sagði í samtali við Vísi í dag að litið væri á starfsfólk fyrirtækisins sem kostnað og tölur en ekki manneskjur.

Steinþóri Skúlasyni forstjóra var ekki kunnugt um óánægju á meðal starfsfólks SS þegar Vísir náði tali af honum í dag. Aðspurður um uppsagnir starfsfólks undanfarna daga svaraði Steinþór að tvær þeirra ættu sér eðlilegar skýringar. Hann sagðist hins vegar ekki hafa heyrt af neinum uppsögnum í dag. Þegar fréttamaður Vísis tjáði honum að þrír starfsmenn hefðu skilað inn uppsögnum í dag svaraði Steinþór: "Þá veist þú meira en ég"


Tengill á fréttina : http://visir.is/article/20080206/FRETTIR01/80206077



Könnun VR

Sláturfélag Suðurlands í 116. sæti af 117. Trúverðugleiki stjórnenda fær 8 stig af 100 mögulegum !!!



Smellið á myndina til að stækka

Einnig er hægt að sjá könnunina á VR.is : http://www.vr.is/index.aspx?groupid=476601&tabid=2019