Sunday, July 6, 2008

Síðustu dagarnir í SS Byrginu.

Á dögunum auglýsti umsjónarmaður síðunnar eftir nýjum einstaklingum í ritnefnd. Og ekki stóð á viðbrögðunum. Margir höfðu samband og fullt af efni barst, mest þó óbirtingarhæft enda augljóslega frá "trufluðum" einstaklingum. Meðal þeirra sem sendu inn efni var Steinþór en hann hefur sjúklegan áhuga á þessari síðu, eins og margoft hefur komið fram í DV og í samtölum við samstarfsmenn.

Umsjónarmaðurinn var lengi í vafa um hvort hann ætti að birta tölvupóstinn frá Steinþóri (þetta er jú barnvæn siða) en hefur nú ákveðið að birta hann, enda hefur hann óvænt skemmtanagildi.

Fyrsta setningin í tölvupóstinum er svohljóðandi: "Þið þurfið ekki mig til að skreyta síðuna ykkar."

En samt sendir þú inn tölvupóst Steinþór!

Næsta setning: "Það er örugglega hægt að finna fleiri myndbönd af morðum og álíka viðbjóð sem þið getið sett inn á þessa síðu ykkar." Og líka tölvupósta frá þér, Steinþór!

Og svo kemur sú þriðja: "Ykkur virðist slétt sama hvort börn eða aðrir sjái þetta sem þið látið frá ykkur." Af öllu því sem þú gast gagnrýnt á þessari síðu þá fanst þér bara hægt að gagnrýna að hún væri ekki nógu barnvæn!!! Fyrir utan nokkrar myndir af starfsmönnum SS hefur þess verið vel gætt að hræða ekki börn eða aðra.

Og þar næsta: "Síðan segir í raun ekkert um mig og SS..." Nú hvers vegna ertu þá að senda þennan tölvupóst, Steinþór?

Að lokum: " ... og við skulum sjá hver hlær að lokum." og undirskrift: kv steinþór, með litlu s-i.

Undirskriftin er sérstaklega fyndin (og ekki bara vegna þess að þú kannt ekki að skrifa nafnið þitt, Steinþór). Mikið að ekki stóð kær kv. steinþór!

Og svo segir fólk að hann að þú hafir ekki húmor.

Nokkrum glöggum lesendum siðunnar fannst skrítið að í síðustu færslu, þar sem sýnd var mynd af fyrstu skólfustungu að nýrri förgunaraðstöðu á Hvolsvelli, hafi allir brosað út að eyrum. Skýringin á því er samt ósköp einföld. Steinþór hafði verið slæmur í maganum dagana á undan. Það gladdi því alla viðstadda þegar í ljós kom að hann gat prumpað (í leðurbuxurnar sínar) án þess að eitthvað kæmi með. Myndin hér að neðan var hins vegar tekin þegar annað kom í ljós.

Nú er komið í ljós að læringurinn hún Herborg Lewinsky , sem var í margra vikna fríi - sumir héldu til þess að eiga, er ekki ólétt. Hún lítur bara út fyrir að vera það.

Búið er að taka (ó)myndirnar af öllu starfsfólki SS út af heimasíðu félagsins. Þetta mun hafa verið gert vegna fjölda kvartana frá neytendum. Börn sem álpuðust inn á síðuna áttu mjög erfitt með svefn (sjá sýnishorn hér fyrir neðan).

Jónasi, stjórnarformanni, frá Hrossholti, var falið það verkefni á síðasta stjórnarfundi SS að grafast fyrir um hvert allir peningarnir sem Steinþór er búinn að tína fyrir bændunum væru. Eitthvað skoluðust skilaboðin til hjá Jónasi (sjá mynd) en hugmyndin ekki alvond.

Í síðustu færslu var listi sem Bjarni starfsmannastjóri tók saman og var yfirlit yfir þau 10 störf sem myndu henta Steinþóri nú þegar ljóst er að hann er á förum frá félaginu. Glöggur lesandi síðunnar benti á að Steinþór gæti ekki leikið asna eins og þar var lagt til. Annar taldi að hann gæti orðið spákona (á fullt af kristöllum). Annar benti á að til þess þyrfti að sjá hluti fyrir. Enn einn taldi að hann gæti orðið seðlabankastjóri, því hann hefði ekkert vit á peningamálum.

Starfsmenn í SS Byrginu.

No comments: