Thursday, April 3, 2008

Enn æsast leikar um borð í SS Títanic!


Það er búið að vera svo mikið að gera hérna um borð í SS Títanic að við höfðum ekki haft tíma til þess að setja nýja færslu inn á síðuna. Þurftum sum meira að segja að vinna laugardaginn fyrir páska og allt.

Í síðustu færslu sögðum við meðal annars frá því að Steinþór, skipperinn og svifflug(k)a(p)pinn sjónumhryggi (mikið ofboðslega er það nú hallærislegt að mega ekki fljúga neinu almennilegu), væri búinn að týna gula lukkublýantinum sínum. Allir hér á Fosshálsi eru ennþá að leita. Starfsfólk á Selfossi og Hvolsvelli líka. Enginn veit hvað svona blýantur getur gengið langt!

Núna er Steinþór hins vegar búinn að týna lausri skrúfu. En vegna þess hve mikið grín var gert að honum þegar hann lýsti eftir týnda gula lukkublýantinum sínum með tilfinningalega gildinu (sem reyndar færði honum ekkert nema óheppni) þorði hann ekki að senda tölvupóst á allla á Fosshálsi af ótta við að það yrði hlegið að honum (eins og það þyrfti nú til!).

Steinþór er reyndar líka búinn að týna hlandgulu „limited edition" Startrek nærbuxunum sínum með öllum geimverumyndunum á. Þetta fer þó ekki hátt. Gæti litið illa út í fjölmiðlum eða á netinu (úbs!). Jafnvel verr en viðtalið í DV vegna slagsmálanna í keilunni (þar sem „enginn" meiddist þó einn væri með nefið út á kinn næstu vikur á eftir).

Gunnar Grétar lét sig hverfa eins og blý(f)anturinn skynsami nokkrum dögum fyrir páska. Enginn ennþá gefið sig fram sem reyndi að leita að honum. Enda eins gott!
„Snillingurinn" er annars kominn með vöruvantanir á heilann. Og þegar hann er kominn með eitthvað á heilann þá er það þar áfram!

Nú liggja hins vegar allir undir grun vegna þessarar síðu. Jafnvel talið að Hanna, fyrrverandi ektakvinna Steinþórs, hafi lánað myndir úr fjölskyldualbúminu! Samt frekar hæpið. En skilnaðurinn ljótur. Flugfreyja í spilinu. Hopp-fargjald?

Sigríður og Herborg, sem eins og allir vita eru að hætta vegna ánægju með Steinþór, Guðmund Svavars, H(j)alta, Bjarna Stefáns (sem ekkert skilur út í Endurmenntun), Gústa (sem ekki skilur neitt í neinu á Hvolsvelli) o.s.frv. eru að reyna að stappa stálinu í okkur hásetana. Enginn skilur lengur hvers vegna þær eru hérna ennþá. Enginn talað eins mikið um „forstjórafílflið" og þær.


Salan er á algerum bömmer og afgreiðsludeildin er í algeru limbói. Allur kostnaður úr böndunum. Robert Imsland stendur sig vel í að passa upp á að vörur berist ekki til viðskiptavinanna. Fær mikla hjálp frá Hvoslvelli. Enginn veit hvort afgreiðsludeildin verður flutt til Hvolsvallar eða ekki eða hvort það skipti máli nema síður sé.


Steinþór, náði svo nýjum lægðum í síðustu viku! Sá ekki einu sinni sóma sinn í því að hafa lokað um borð í dallinum vegna jarðarfarar fyrrverandi símadömu. Hundskaðist þó til að mæta í jarðarförina. Það lýsir kannski best ástandinu um borð í SS Títanic að enginn vildi sitja hjá honum í kirkjunni.


Steina skipper má þó segja það til hróss að hann stendur enn vaktina – stjarfur í horninu sínu, blýantslaus, nærbuxnalaus og fyrir luktum dyrum! Minnir á strút sem hefur stungið hausnum í sandinn og það geta allir sparkað í rassinn á honum (eða gert eitthvað annað við hann) án þess að hann viti hver gerði það!

No comments: