Sunday, March 9, 2008

Fréttir frá Fosshálsi


Enn versnar ástandið hér á Fosshálsi. Steinþór þykist nefnilega vera búinn að komast að því að það séu núverandi starfsmenn sem halda úti þessari síðu. Þeir sem nú eru grunaðir eru Viðar, vegna þess að hann mætti ekki á árshátíðina, og Einar Örn, vegna þess að hann mætti á hana.

Allstaðar er kvartað undan Steinþóri eða „forstjórafíflinu“ eins og hann er almennt kallaður innan veggja félagsins . Bændur líkja honum við Edward John Smith skipstjóra Titanic og viðskiptavinirnir segja hann „truflaðan“ .
Okkur, viðskiptavinum og bændum finnst hann hrokafullur. Svo talar hann líka niður til okkar. Maður hefur heyrt mikið talað um það.

Óánægja kaupmanna leynir sér ekki. Þeir þurfa núna að díla við Steinþór beint bæði á fundum og í tölvupóstum, sem er þó skárra af tvennu illu. Þeim er mismunað herfilega. Við keðjustjórarnir, erum milli stein(þór)s og sleggju. Það má búast við hemdaraðgerðum.

Og nú er Dalvík búin að ákveða að framlengja ekki samninginn um skólamatinn. Bærinn treystir víst ekki lengur fyrirtækinu. Lesa víst DV. Hafnfirðingar lesa það líka þannig að búast má við því að samningurinn verði heldur ekki framlengdur þar. Og fleiri munu fylgja í kjölfarið.

Gunnar Grétar, er að klúðra sölunni á vörunum frá Mars, big time! Í febrúar náði hann nýjum lægðum. Skeit lengra upp á bak en hann hefur gert lengi. Má segja að það hafi verið alveg upp í hnakka, bæði andlega og líkamlega. Hann er nú alveg að fara á taugum út af heimsókn Stefáns , Mars-kalls. Líkur aukast á því að SS missi umboðið. Viðvörunarbjöllur farnar að klingja - eða eru það kannski kirkjuklukkurnar að hringja inn útförina?

Salan er á svo miklum bömmer að Steinþór er farinn að senda út tölvupósta og ýta á tilboð í öllum keðjum mörg í viku. Er það félaginu í hag ? En ekkert gerist... ekki hægt að taka manninn alvarlegan þar sem hann talar við álfa og steina.

Verst samt að við keðjustjórarnir skyldum vita að salan var á bömmer. En því var nú kippt í liðinn með því að loka á aðgang að söluupplýsingum. Áhöfnin á Titanic hafði örugglega betri upplýsingar til þess að stýra þeirri skútu eftir.

Sölumenn keppinautanna nýta sér aðstæður grimmt og herja á markaðinn.

Mann(s)auður er orð mánaðarins hjá SS!

No comments: