Wednesday, September 17, 2008

Plís, Steinþór plís !


Hættu að niðurlægja sjálfan þig og fyrirtækið eins og í dag með því að koma í DV og segja að það sé ekki þess virði að fjalla um síðuna slaturfelagid.com eða svara þeim sem standa fyrir henni. En þú svarar þeim samt með því að gefa heilt viðtal !

Ertu kominn í flöskuna ? Eða eru garðálfarnir að stjórna þér ? Geimverur kannski ?

Það er eitt að fólk haldi að þú sért fífl... en þetta gekk meirasegja fram af okkur.

Er skrítið þó fólk segi að þú sért húmorslaus ?!

Þú segir í viðtalinu við DV að það séu fyrst og fremst fjármagnsliðir og erlend lán sem sé að "setja Sláturfélagið á hausinn", þú hafir ekkert með það að gera. Ert þú þá semsagt ekkert búinn að vera í vinnunni síðastliðin 20 ár ?

Hvers vegna þurfti Sláturfélagið að taka lán ? Var það vegna þess hve það var illa farið eftir 20 ára setu þína í ,,andsetnum” forstjórastól, í limited edition star trek skítabrókum? Og hvers vegna að taka erlend lán ? Vissir þú ekki að gengið var allt of hátt skráð ?!

Og afhverju segist þú hafa vissar hugmyndir um það hverjir standi að baki síðunni ? Fyrr á árinu varstu alveg viss ?! Hvað hefur gerst ?!

Svo viðurkennir þú að mikil óánægja hafi verið meðal starfsmanna. Að hlutirnir hafi verið í verulegu ólagi. En þú sagðir í febrúar margoft að það væri engin óánægja. Menn nefbrytu bara hvern annan í mesta bróðerni... svo dregur þú í efa trúverðuleika síðuhaldara? En hvar er þinn trúverðuleiki þá ?

Ert þú þá ekki bara sjálfur lágkúrulegur og búinn að gera þig ómarktækan ?

2 comments:

Anonymous said...

af hverju er steinþor ad auglysa siduna madurinn er faviti og vill auglysa þad

Anonymous said...

Frábært að þessi skemtilega síða skuli vera lifandi enn.

Kv T