
Nýjasta áhyggjuefnið um borð í SS Títanic er hvað hafi eiginlega orðið af gula Volvo lukku(skrúf)blýantinum hans Steinþórs en hann lýsti eftir honum í tölvupósti sem sendur var á alla á Fosshálsi sl. föstudag !
Þessi blýantur hefur mikið tilfinningalegt gildi fyrir Steinþór, að hans sögn. Vandamál sem ekki var hægt að leysa með því að tala við kristallana voru leyst(?) með því að tala við blýantinn. En nú er hann sem sagt búinn að fá nóg og hefur látið sig hverfa, þ.e. blýanturinn.
En þetta er því miður ekki eina vandamálið sem hrjáir skipperinn sjónumhrygga. Bændur eru víst farnir að ókyrrast. Vilja nýjan skipper. Muli framleiðslustjóri og halti fjármálastjóri(nn) hafa verið að bjóða sig fram.
Ekkert gengur með mannauðsstjórnunina. Ekkert bólar á Íþróttastyrkjum og lýsisskammtur helmingaður (vegna misnotkunar - starfsfólk var farið að gúffa í sig tveimur skeiðum!). Bjarni starfsmannastjóri sendur á námskeið en hann skilur ekkert. Það hefur ekki gerst áður hjá Endurmenntun !
Bónus er í aðgerðum gegn SS. Ekki næg framlegð að koma út úr vörunum. Steinþór hélt að lausnin væri að hann spjallaði við Gumma Marteins. Gullfiskaminnið ekki lengra en svo að hann mundi ekki eftir því að hann rak Jóhannes (í Bónus) á sínum tíma þegar hann var hjá SS. Baugsmenn eru með fílsminni hins vegar og muna allt.
Kaupásmenn líkar fúlir út í Steinþór. Ætla að henda út öllum SS vörum nema pylsum og 1944.
Samkaupsmenn heldur ekki ánægðir. Vilja fá fullan skilarétt eins og aðrir og kjör í samræmi við veltu.
Viðskiptavinir magnkaupadeildar hafa sölumenn að háði og spotti.
Vöruskil eiga hug Steinþórs allan þessa dagana á sama tíma og vörur fást ekki í búðum vegna aðgerða kaupmanna og klúðurs í framleiðslunni. Hann vil heldur sækja fé inn í fyrirtækið heldur en út á markaðinn. Ekki talað um neitt annað á fundinum þar síðasta mánudag.
Steinþór tók Þórhall í gegn sama dag. Hann er alveg eyðilagður, íhugar að hætta... eins og oft áður. Andlegt álag hjá honum ekki í nokkru samræmi við heilastærð lengur!
Það er búið að ráða nýjan sölumann. Kemur frá Borgarneskjötvörum. Enginn spurt hvers vegna hann var látinn hætta þar. Einar Örn hins vegar feginn að vera ekki lengur einn um að fara heim í hádeginu til þess að leggja sig. Geta nú farið saman og sparað bensín!
Sölumenn kvarta yfir því að „opnu dyrnar" hjá Steinþóri séu lokaðar. Hann bendir bara á Gunnar Grétar, helsta lærisveinn sinn í mannlegum samskiptum í gegnum tölvu. Steinþór búinn að skrökva svo miklu að hann er hættur að geta horft í augun á fólki.
Enginn veit lengur hver gerir hvað (eða hvort) eða er yfir hverju eða hverjum og hvers vegna (eða hvers vegna ekki). Gunnar Grétar og trunturnar tvær, sem eru að fara til útlanda (önnur í nám til Danmerkur til að læra eitthvað og hin til Noregs til að vera au-pair hjá ítalska þjálfaranum), láta ekki ná í sig. Allir að íhuga að fylgja fordæmi gula skrúfblýantsins og láta sig hverfa!
Steina skipper má þó segja það til hróss að hann stendur enn keikur í hommableiku skyrtunni sinni í stafni SS Títanic (þó sennilega skut). Þórhallur segist þó hafa komið að honum grátandi inn á skrifstofu einn morguninn (eftir að hann var búinn að bjóða góðan daginn, án þess að nokkur heyrði).
Fúlir vindar leika um skipperinn á SS Títanic. Borgarísjakar við sjóndeildarhringinn. Fara stækkandi!
No comments:
Post a Comment