
Nú eru Jónas stjórnarformaður, sem ber ábyrgð á Steinþóri, frá “Kálfur út úr kú holti” og félagar í stjórn Sláturfélags Suðurlands búnir að fá endanlega nóg af honum eftir 20 ár á forstjórastóli. Ekki er lengur hægt að múta Jónasi og varastjórnarformanninum með stjórnarsetu í Reykjagarði.
Búast má við því að stjórnin “afhausi” Steinþór á næstu dögum.
Ástæðurnar fyrir óánægju Jónasar og félaga eru fyrst og fremst samstarfsörðugleikar Steinþórs við starfsmenn og bændur vegna arfaslakrar afkomu í gegnum tíðina, meintrar einhverfu og truflunar. Þessi síða hefur einnig gert sitt.
Ekkert lát er á brotthvarfi starfsmanna og svo illa er komið á Fosshálsi að það þarf að kalla til Huga Sævars, áður hjá Íslensk-Ameríska, til þess að segja okkur hvernig eigi að raða í hillur (sú þekking hafði tapast).
Stórhættulegt er að standa í útidyrunum þegar hjörðin út úr fyrirtækinu fer hjá.
Niðurstaðan í síðustu VR könnun, sem birt var um helgina, var afhroð fyrir Steinþór eftir að hann hafði verið með byssuhlaupið upp í kjaftinum á okkur til þess að kjósa “rétt”.
Við þetta bætist að nú eru 3 mál á hendur Steinþóri og SS hjá VR. Fleiri mál munu í farvatninu. Meðal annars eineltismál.
Ekkert gengur hjá Steinþóri og félögum að finna umsjónarmann síðunnar. Geir og Grani hafa verið settir í málið og munu byrja um leið og þeir hafa fundið líkin af Guðmundi og Geirfinni.
Steinþór býr yfir öllum þeim kostum sem prýtt geta góðan skipstjóra ... á skipi sem á að sökkva. Hans helstu kostir eru að reyna að láta okkur halda að hann sé með allt á hreinu þó hann hafi ekki grænan grun um hvað er að gerast og koma fram opinberlega fyrir hönd félagsins í DV og gera sig að fífli.
Enginn man lengur hvenær Steinþór tók síðast skynsamlega ákvörðun. Samt verst að hann er haldinn brjálæðislegri minnimáttarkennd (sem er einkenni stubba sem ekki mega fljúga öðru en kústsköftum) sem brýst út í húmorslausum hroka og mannfyrirlitingu.
Steinþór!
Það verður bráðlega leyft að flytja inn hrátt kjöt. Vildum bara láta þig vita vegna þess að allur þinn tími fer í að vera inn á þessari síðu. Hangir hér lon og don og reynir að senda inn athugasemdir um hvað þú sért frábær!
Það sem þó gerði útslagið hjá Jónasi og félögum varðandi ,,afhausun” Steinþórs var tilboðið sem hann gerði Einari Viðari fyrrverandi sölustjóra í byrjun apríl. Að sögn Einars bauð Steinþór honum ríflega greiðslu í stað sölubónuss gegn því að hann skrifaði óhróður um fyrrverandi starfsmann. Það kann þó líka að hafa spilað inn í að talið er að Steinþór fari heim í hádeginu, á vinnutíma, til að ríða!
Jónas og félagar eru búnir að ræða við Hjalta fjármálastjóra um að taka við SS Títanic. Einhver þarf jú að tryggja að allir komist frá borði áður en skútan sekkur. Kalli bókari og Grjóni DOS, næstu undirmenn Hjalta, eru ekkert alltof hrifinir. Hjalti er jú þekktur fyrir að draga lappirnar eins og Steinþór þegar kemur að ákvarðanatöku. Ekki víst að allir komist frá borði.
Búast má við því að “afhausun” Steinþórs verði fylgt eftir með því að “afhausa” Gunnar Fretar og Guðmund Svavarsson, framleiðslustjóra, enda bera þeir tveir ábyrgð á hundraða milljóna tjóni SS vegna vöruvantana á ári (auk almennra leiðinda).
Nýjustu fréttir eru að Steinþór hafi verið í tölvusamskiptum við Gunnar Fretar (mannleg samskipti erum jú báðum um megn) um að segja upp tveim starfsmönnum í sölu- og markaðsdeildinni. En meira um það í næstu færslu.
Tilvonandi fyrrverandi starfsmenn SS.
No comments:
Post a Comment