Sunday, September 21, 2008

Ríðum, ríðum, en rekum ekkert yfir sandinn.

Ef það er eitthvað sem hægt er að segja samstarfsfólki okkar hjá SS til hróss þá er það greddan. Þó ekki út á markaðnum, heldur meira svona innanhúss.

Steinþór hefur verið þar fremstur meðal jafningja. Þóra flugfreyja, vinkona Hönnu fyrrverandi, féll fyrst í valinn. Þóra fékk reyndar tiltölulega fljótt leið á Steinþóri enda sennilega leiðinlegasti maður í heimi – frá upphafi!

En Steinþór er talinn hafa komið víðar við. Þannig var meint ólétta Herborgar, deildarstjóra magnkaupadeildar talin, af sumum, honum að kenna. Einnig er hann talinn renna hýru auga til sölu- og markaðsstjórans.

Kalli keðjustjóri, karlgreyið hefur upp á síðkastið átt mjög erfitt uppdráttar hjá veikara kyninu. Fréttin um daginn um manninn sem hafði mök við bíl lýsir eiginlega vel hvernig ástandið er orðið.


Kalli er bæði búinn að segja verslunarstjórum og kælamönnum að fyrsta hugsunin sem fari í gegnum huga hans þegar hann sér berrasaðar kerlingar á netinu séu að þessar vildi hann hitta á dimmum stað (sennilega vegna þess að hann á þá meiri séns). Svo uppnuminn er Kalli búinn að vera að það eina sem hefur komið upp úr honum að viti er, ríða, ríða, RÍÐA!

Þeir starfsmenn SS sem voru þar þegar höfuðstöðvar félagsins voru á Skúlagötunni segja að ástandið hjá SS sé að verða eins og það var þá. Allir að riðlast á öllum. Ástandið minni líka á síðustu dagana í Byrgi Hitlers enda ástandið að verða álíka í SS Byrgi Steinþórs. Þar var öllu ríðið sem hreyfðist. Hér hjá SS er hins vegar ekki gerður greinarmunur á því hvort hlutir hreyfast eða ekki.

Og það er orðið æ erfiðara að halda úti þessari síðu vegna greddu (samstarfsfólksins). Maður situr kannski við tölvuna og er að setja inn einhvern snilldartextann á síðuna og lendir þá í því að einhver vinnufélaginn er kominn með lúkuna í klofið á manni.

Það er helst seint á kvöldin, eins og núna, sem maður fær að vera hér í friði. En bíðum við. Ég held ég heyri í einhverjum. Ríða! Ríða! RÍÐA!!!


No comments: