Sunday, September 21, 2008

Ríðum, ríðum, en rekum ekkert yfir sandinn.

Ef það er eitthvað sem hægt er að segja samstarfsfólki okkar hjá SS til hróss þá er það greddan. Þó ekki út á markaðnum, heldur meira svona innanhúss.

Steinþór hefur verið þar fremstur meðal jafningja. Þóra flugfreyja, vinkona Hönnu fyrrverandi, féll fyrst í valinn. Þóra fékk reyndar tiltölulega fljótt leið á Steinþóri enda sennilega leiðinlegasti maður í heimi – frá upphafi!

En Steinþór er talinn hafa komið víðar við. Þannig var meint ólétta Herborgar, deildarstjóra magnkaupadeildar talin, af sumum, honum að kenna. Einnig er hann talinn renna hýru auga til sölu- og markaðsstjórans.

Kalli keðjustjóri, karlgreyið hefur upp á síðkastið átt mjög erfitt uppdráttar hjá veikara kyninu. Fréttin um daginn um manninn sem hafði mök við bíl lýsir eiginlega vel hvernig ástandið er orðið.


Kalli er bæði búinn að segja verslunarstjórum og kælamönnum að fyrsta hugsunin sem fari í gegnum huga hans þegar hann sér berrasaðar kerlingar á netinu séu að þessar vildi hann hitta á dimmum stað (sennilega vegna þess að hann á þá meiri séns). Svo uppnuminn er Kalli búinn að vera að það eina sem hefur komið upp úr honum að viti er, ríða, ríða, RÍÐA!

Þeir starfsmenn SS sem voru þar þegar höfuðstöðvar félagsins voru á Skúlagötunni segja að ástandið hjá SS sé að verða eins og það var þá. Allir að riðlast á öllum. Ástandið minni líka á síðustu dagana í Byrgi Hitlers enda ástandið að verða álíka í SS Byrgi Steinþórs. Þar var öllu ríðið sem hreyfðist. Hér hjá SS er hins vegar ekki gerður greinarmunur á því hvort hlutir hreyfast eða ekki.

Og það er orðið æ erfiðara að halda úti þessari síðu vegna greddu (samstarfsfólksins). Maður situr kannski við tölvuna og er að setja inn einhvern snilldartextann á síðuna og lendir þá í því að einhver vinnufélaginn er kominn með lúkuna í klofið á manni.

Það er helst seint á kvöldin, eins og núna, sem maður fær að vera hér í friði. En bíðum við. Ég held ég heyri í einhverjum. Ríða! Ríða! RÍÐA!!!


Wednesday, September 17, 2008

Plís, Steinþór plís !


Hættu að niðurlægja sjálfan þig og fyrirtækið eins og í dag með því að koma í DV og segja að það sé ekki þess virði að fjalla um síðuna slaturfelagid.com eða svara þeim sem standa fyrir henni. En þú svarar þeim samt með því að gefa heilt viðtal !

Ertu kominn í flöskuna ? Eða eru garðálfarnir að stjórna þér ? Geimverur kannski ?

Það er eitt að fólk haldi að þú sért fífl... en þetta gekk meirasegja fram af okkur.

Er skrítið þó fólk segi að þú sért húmorslaus ?!

Þú segir í viðtalinu við DV að það séu fyrst og fremst fjármagnsliðir og erlend lán sem sé að "setja Sláturfélagið á hausinn", þú hafir ekkert með það að gera. Ert þú þá semsagt ekkert búinn að vera í vinnunni síðastliðin 20 ár ?

Hvers vegna þurfti Sláturfélagið að taka lán ? Var það vegna þess hve það var illa farið eftir 20 ára setu þína í ,,andsetnum” forstjórastól, í limited edition star trek skítabrókum? Og hvers vegna að taka erlend lán ? Vissir þú ekki að gengið var allt of hátt skráð ?!

Og afhverju segist þú hafa vissar hugmyndir um það hverjir standi að baki síðunni ? Fyrr á árinu varstu alveg viss ?! Hvað hefur gerst ?!

Svo viðurkennir þú að mikil óánægja hafi verið meðal starfsmanna. Að hlutirnir hafi verið í verulegu ólagi. En þú sagðir í febrúar margoft að það væri engin óánægja. Menn nefbrytu bara hvern annan í mesta bróðerni... svo dregur þú í efa trúverðuleika síðuhaldara? En hvar er þinn trúverðuleiki þá ?

Ert þú þá ekki bara sjálfur lágkúrulegur og búinn að gera þig ómarktækan ?

Saturday, September 6, 2008

TAP TAP TAP !!!

Nú liggur fyrir að Steinþór hefur gert bændur, sem eiga Sláturfélagið, 471,7 milljónum fátækari fyrstu sex mánuði ársins.

Smellið hér til að sjá skýrsluna

Verslunarstjórar og kælafólk virðist sammála um það að SSsökkvandi skip enda hefur þjónusta verið hræðileg í allt sumar og mikið um vöruvantanir. Það litla sem kemst í búðir rennur svo út og er fargað. Fólk nennir ekki lengur að læra nöfnin á sölumönnum eða kynnast þeim því það er skipt jafn ört á þeim og Steinþór skiptir um "Star Trek" nærbuxur.

Hann situr nú einn í leiguíbúð í Garðabæ, á nærbuxunum, og freistar þess að fá húsaleigubætur því flugfreyjan hans er flogin frá honum og hann situr einn uppi með leiguna.

Það eru "ó" vinsamleg tilmæli sem bárust okkur frá vinalínunni að láta Steinþór vita að hann eigi að hætta hringja þangað inn því fólk með alvöru vandamál nái ekki inn.