
Bændur eru farnir að ókyrrast en Muli hefur verið í því að róa þá. Þeir vilja bara að hann taki við forstjórastólnum.
Halli var að segja okkur góða sögu af forstjóranum . Það er ekki satt að hann bjóði ekki góðan daginn heldur mætir hann bara svo snemma á morgnana að það heyrir enginn í honum !
Hér gantast menn með það að nú ætti Steinþór eiginlega að fara að fordæmi Lárusar Welding hjá Glitni og lækka launin sín. En ekki um 50%. Hann ætti að hafna öllum launum og bjóðast til að endurgreiða þau laun sem hann hefur fengið frá 1988 !!
Bæði nafnlaust bréf sem sent var á stjórn og varastjórn félagsins í haust sem og bréfið frá fyrrum starfsmanni sem hætti í lok sumars eru komin í umferð. Þar er í ýtarlegu máli lýst stjórnunarháttum Steinþórs sem og óánægju með hann. Við erum að velta fyrir okkur hvort rétt sé að birta þau hér.
Óánægja með Steinþór virðist aukast dag frá degi enda er starfsmannavelta hrikaleg. Engir peningar virðast til nema fyrir nýjum rándýrum bíl fyrir forstjórann.
Steinþór hefur fundið lausn á neikvæðu niðurstöðunum í VR könnununum. Hann hamrar á því við fólk að vera jákvæðara í VR könnuninni sem núna er í gangi !
Það er ekki annað hægt að segja en að innanhúsdeilur séu alveg að fara með fyrirtækið. Árshátíðin sem á að vera 1.mars nk. var næstum blásin af vegna ótta við hópslagsmál eins og í keilunni um daginn. Það þarf bara að vera með vopnaleit líkt og í framhaldsskólum vestanhafs !