Thursday, June 12, 2008

Blóm og kransar afþakkaðir

Nú er svo komið að förgunaraðstaðan á Hvolsvelli, fyrir kjöt sem rennur út í búðunum dugði ekki lengur og tók Jónas, stjórnarformaður frá Klárhóli því skóflustungu að nýrri förgunaraðstöðu þann 3. júní sl. Jónas vann sér það síðast til frægðar að vera talinn hafa verið i hópi þeirra bænda á Suðurlandi sem mótmælti símanum 1906 með hópreið til Reykjavíku. (sjá mynd , Jónas með skófluna en Steinþór í limited edition leðurbuxunum sínum)

Fullkomið stjórnleysi ríkir hér á Fosshálsi þar sem áður ríkti alger óstjórn. Engar ákvarðanir eru teknar (nema þær séu vitlausar) vegna þess að enginn veit neitt eða þá að það þarf að funda fyrst um málið (og svo vita ekki neitt).

Nýjir sölumenn ganga meira og minna sjálfala og panta út í loftið. Þeir sem hafa einhverja reynslu eru annað hvort farnir eða vildu að þeir væru það. Vöruskil eru að sliga fyrirtækið.

Salan á SS grillkjötinu, sem Steinþór samdi um við Gumma i Bónus, er nánast engin en sú sala átti að bjarga fyrirtækinu. Kjötið rennur út í búðunum og úldnar þar vegna þess að sölumenn eru ekki að hirða það úr kælunum. 20% afslátturinn til Gumma í Bónus skilar því hvorki SS né Bónus neinu og gert er ráð fyrir því að kjötið verði tekið úr sölu á næstu dögum.

Það á ekki af henni að ganga lambinu henni Grétu, nýja sölu- og markaðsstjóranum. Hún á ekki sjö dagana sæla því ofan á allt annað þá sætta Samkaupsmenn sig ekki við einungis 14% afslátt af kjötvörum og full skil. Í ljósi mikillar veltuaukningar vilja þeir meira. Kæra sig ekki um að niðurgreiða afsláttinn á grillkjötinu í Bónus. Að sögn Grétu hafa þeir hótað að hætta viðskiptum að mestu ef ekki verður orðið við kröfum þeirra.

Dalvík er síðan búið að semja við nýjan aðila um skólamatinn. Gerðu sér ekki að góðu upphitað sull frá Hvolsvelli þegar foreldrar barna þar litu ekki við því.

Til þess að krafsa í bakkann og bjarga því sem bjargað verður hefur SS nú hafið sölu á rúlluplasti til bænda (til viðbótar við sölu á áburði og fóðri og bráðum væntanlega hlandgulum ullarnærbuxum og sauðskinnsskóm).

Á sama tíma er grillkjöt að koma í búðir óáprentað. Því má ætla að ,,snillingarnir” á Hvolsvelli hafi víxlað plastinu og að við munum sjá heyrúllur með mexíkó og Cajp’s bragði í sumar !

Talandi um bændur, þá eru þeir sá hópur sem ætti virkilega að vera ánægður núna og afþakka blóm og kransa í samdrættinum. Þeir, eigendur SS, eru að losna við Steinþór. Gjaldeyrisbrask hans með fé SS (samt ekki sauðfé) án vitundar stjórnar eða félagsmanna síðastliðin tvö ár kostuðu félagið tugi milljóna króna. Til viðbótar hafa hundruðir milljóna tapast á annars konar braski í gegnum tíðina og milljarðar vegna annarra rangra ákvarðana (eða ákvarðanaleysis).


En það eru fleiri sem kætast. Einn þeirra er Bjarni Stefáns, starfsmannastjóri og ákafur áhugamaður um nýtingu eigin veikindadaga, er búinn að taka saman lista yfir þau 10 störf sem myndu henta Steinþóri best nú þegar ljóst er að hann er á förum frá félaginu. Listi Bjarna, er svohljóðandi:

1. Opna Qbar í Írak.
2. Dyravörur á Qbar í Reykjavík
3. Leika afturendann á hesti í leiksýningum.
4. Vera “crash test dummy”.
5. Leika ísbjörn í Skagafirði.
6. “Leika” framhlutann á asna í leiksýningum
7. Vera þátttakandi í dvergakasti (með eða án hjálms)
8. Útfararstjóri
9. Rasshárasnyrtir
10. Launafulltrúi hjá VR (til að leysa úr “sínum” málum).